Gullfuglinn Gullfuglinn

Publisher Description

Þegar konungur uppgötvar að það vantar eitt epli á gulleplatréð í aldingarðinum fyrirskipar hann að vaka skuli yfir trénu til að komast að því hver hafi tekið eplið. Yngsti sonur kemst næst því að klófesta þjófinn sem reynist vera fugl úr skíragulli en nær einungis að fanga eina gullfjöður. Þegar ráðgjafar konungs hafa sannfært hann um að fjöðrin sé verðmætari en allt konungsríkið ákveður konungur að fjöðrin ein dugi honum ekki og að hann verði að eignast gullfuglinn. Synir konungs leggja af stað til að finna gullfuglinn. Á vegi þeirra verður ráðagóður refur sem reynist hafa mikil áhrif á afdrif þeirra og leitina að gullfuglinum. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

GENRE
Fiction
NARRATOR
ÁBÁ
Árni Beinteinn Árnason
LANGUAGE
IS
Icelandic
LENGTH
00:17
hr min
RELEASED
2022
5 February
PUBLISHER
SAGA Egmont
SIZE
14.7
MB