Vísnagull Vísnagull

Vísnagull

Vísur og þulur fyrir börn í fangi

    • 9,49 €
    • 9,49 €

Publisher Description

Í bókinni Vísnagull er að finna vinsælar vísur og þulur sem henta ungum börnum. Rafbókarútgáfan hefur að geyma alla 30 söngvana og þulurnar sem eru á samnefndum geisladiski sem fylgdi prentútgáfunni. Hægt er að spila allan lagalistann í rafbókinni en einnig er hægt að spila eina hljóðskrá í einu í tengslum við hverja síðu bókarinnar.

Víða var leitað fanga en mest í þjóðlegan arf skráðra og munnlegra heimilda. Efnið hefur verið hluti af námskeiðum Tónagulls um árabil og reynst afar vinsælt meðal ungra barna og foreldra.

Bókina prýðir fjöldi málverka sem örva ímyndunaraflið og ljá efninu litríkan ævintýrablæ. Aftast má finna ítarefni og fróðleik um uppruna söngva og vísna. Þar má finna skýringar og lýsingar á leikjum sem fylgja sumum vísum, þulum og söngvum.


Útsetningar eru lágstemmdar eins og hentar þessum viðkvæma efniviði. Þess er gætt að vísurnar og þulurnar séu ætíð í forgrunni og eingöngu er leikið á órafmögnuð hljóðfæri.


Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir safnaði efninu saman, Pétur Ben hafði umsjón með tónlist og upptökum á geisladiski og María Sif Daníelsdóttir málaði myndirnar.

GENRE
Arts & Entertainment
RELEASED
2019
30 November
LANGUAGE
IS
Icelandic
LENGTH
64
Pages
PUBLISHER
Tónagull
SIZE
64.8
MB