Dauðinn á skriðbeltum
Ný endurskoðuð íslensk útgáfa
-
- $6.99
-
- $6.99
Publisher Description
„STÓRKOSTLEG STRÍÐSSAGA“ - ALAN SILITOE
Hermennirnir í 27. skriðdrekaherdeild eru á flótta. Þeir eru neyddir til að taka þátt í hrikalegri rústahreinsun eftir sprengjuregn Bandamanna á þýskar borgir. Beltin á skriðdrekunum feta sig eftir rússnesku steppunum í jökulköldu vetrarveðri og dauðamarsinn virðist endalaus. Þúsundir flóttamanna fylla alla vegi. Rússneskar orrustuflugvélar minna á grimma slátrara; þær ýlfra yfir hausamótunum og breyta flóttamannastraumnum í grátkór til himins.
Sven Hazel var sendur í refsiherdeild sem óbreyttur hermaður í þýska hernum. Frásögn hans er nærgöngul og hrikalega raunsæ þegar hann lýsir grimmdarverkum stríðsins, glæpum nasistanna og svörtum og grófum húmor hermannanna. Þetta eru söluhæstu stríðsbókmenntir heims, með yfir 53 milljón seld eintök.